Mikill áhugi á skýrslu um verðtryggingu

Frá kynningarfundinum um verðtryggingarskýrsluna
Tæplega hundrað manns sóttu kynningarfund Samtaka fjármálafyrirtækja á nýrri skýrslu um verðtryggingu sem unnin var að ósk samtakanna. Skýrslan ber nafnið Nauðsyn eða val – verðtrygging, vextir og verðbólga á Íslandi. Formaður SFF, Höskuldur H. Ólafsson, opnaði fundinn sagði það von stjórnar SFF að skýrslan geti verið gagnlegur leiðarvísir í átt að raunhæfum leiðum til þess að mæta vaxandi eftirspurn eftir fjölbreyttari lánaformum á fjármálamarkaði. Á fundinum kynntu höfundarnir Ásgeir Jónsson, Sigurður Jóhannesson og Valdimar Ármann efni skýrslunnar og svöruðu fyrirspurnum úr sal. Fundarstjóri var Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka. Miklar umræður voru á fundinum um tillögur skýrsluhöfunda og álitamál sem tengjast verðtryggingunni.
Skýrsluna má nálgast hér.
Glærur skýrsluhöfunda :
Erindi Ásgeirs Jónssonar
Erindi Valdimars Ármann
Erindi Sigurðar Jóhannessonar