Fimmtudaginn 3. júní nk. kl. 8:30 bjóða SFF, LL og KPMG til opins morgunverðarfundar um lágvaxtaumhverfið. Markmið fundarins er að skapa vettvang fyrir opin samskipti varðandi hvernig lágvaxtarumhverfið hefur áhrif á fjármálaþjónustu og hvernig unnt er að ná árangri í þessu umhverfi.
Fundurinn er haldinn í húsnæði KPMG, Borgartúni 27 og í streymi. // SKRÁNING //
Á dagskrá verða nokkur ör-erindi:
Steinþór Pálsson, KPMG: Kynning á skýrslu KPMG
Benedikt Gíslason, Arion banka: Sjónarmiða banka
Arnór Gunnarsson, VÍS: Sjónarmið fjárfesta
Snædís Ögn Flosadóttir, EFÍA og Lífeyrissjóði Búnaðabanka Íslands: Lífeyrissjóðir í lágvaxtaumhverfi
Agnar Möller, Kvika eignastýring: Lærdómur af lágvaxtaumhverfi á vesturlöndum
Pallborð:
Lilja Björk Einarsdóttir, Landsbankinn; Gunnar Baldvinsson, Almenni lífeyrissjóðurinn og Yngvi Örn Kristinsson, SFF
Fundarstjóri: Reynir Stefán Gylfason, KPMG
Stjórnandi pallborðs: Katrín Júlíusdóttir, SFF
Velkomin á fundinn!
Við erum spennt að geta boðið fólki til morgunverðar og sætis í sal KPMG á 8. hæð að Borgartúni 27, en einnig verður hægt að fylgjast með fundinum í streymi.
Við þurfum auðvitað að halda áfram að gæta sóttvarna og því er mikilvægt að fólk skrái sig, til að vita hverjir koma á staðinn. Einnig þurfa þau sem ætla að fylgjast með í streymi að skrá sig til að fá sendan hlekk.