Viðskiptaráð, HR, Nasdaq og Samtök fjármálafyrirtækja standa fyrir opnum fræðslufundi um fjárfestingar
Í tilefni af World Investor Week standa HR, Nasdaq, Samtök fjármálafyrirtækja og Viðskiptaráð fyrir opnum fræðslufundi um fjárfestingar. Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 7. október kl. 16 í sal V101 í Háskólanum í Reykjavík og í beinu Facebook-streymi.
Ungt fólk sem hefur áhuga á að stíga sín fyrstu skref í heimi fjárfestinga er sérstaklega boðið velkomið.
Á fundinum munu eftirtalin halda stutt erindi:
- Katrín Júlíusdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja
- Magnús Harðarson, forstjóri NASDAQ Iceland
- Rósa Kristinsdóttir, meðstofnandi FORTUNA Invest
- Már Wolfgang Mixa, lektor við Háskólann í Reykjavík
- Arnaldur Þór Guðmundsson, formaður Ungra fjárfesta
Nánari upplýsingar um fundinn má finna hér.
Verið öll hjartanlega velkomin!