Skip to content

Sameiginlega umsögn SFF, SA og Viðskiptaráðs um frumvarp til breytinga á lögum um endurskoðendur og endurskoðun og lögum um ársreikninga

SFF hafa í skilað sameiginlegri umsögn með SA og Viðskiptaráði til Alþingis um frumvarp til breytinga á lögum um endurskoðendur og endurskoðun og lögum um ársreikninga (endurskoðunarnefndir, siðareglur, sektarákvæði o.fl.) (mál nr. 981). Í stuttu mál snúa athugasemdir samtakanna að eftirfarandi; annars vegar að undanþága vegna endurskoðunarnefnda mætti vera víðtækari og hins vegar að skýra þurfi betur hlutverk endurskoðunarráðs þegar kemur að mati þess á frammistöðu endurskoðunarnefnda en þá sérstaklega vegna mögulegrar skörunar við hlutverk Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands þegar kemur að þeim aðilum sem heyra undir það eftirlit.

Umsögnina í heild sinni má nálgast hér.

Deila