Núna ber mikið á fölskum skilaboðum sem m.a. eru send í nafni póstflutningafyrirtækja og efnisveita. Í þessum skilaboðum er fólki gjarnan beint inn á falskar netsíður þar sem það er beðið um að greiða reikninga með því að gefa upp kortaupplýsingar og öryggisnúmer. Í kjölfarið berast SMS skilaboð um að staðfesta aðgerðina. Ef fólk staðfestir aðgerðina t.d. með því að slá SMS kóðann á fölsku vefsíðuna og þar með afhenda tölvuþrjótunum kóðann, er það í raun að staðfesta heimild fyrir allt öðrum viðskiptum sem svikararnir standa fyrir. Fjárhæðirnar í þeim geta verið háar og miklu hærri en koma fram í falska reikningnum. Töluvert er um þessar svikatilraunir og hættan á tjóni er mikil. Við hvetjum ykkur því til að lesa vandlega alla tölvupósta og öll SMS sem berast í tengslum við netverslun og aldrei slá inn kortaupplýsingar nema að vel athuguðu máli.
Á meðal þeirra leiða sem reyndar eru við svikin er að fá fólk til að skrá kortaupplýsingarnar í það sem virðist vera Apple Pay. Ekki er ólíklegt að einnig verði reynt að fá fólk til að skrá þær í aðrar greiðsluleiðir, s.s. Garmin Pay og Fitbit Pay.
Fáir þú óvænt tilkynningu um tilraun til að skrá kortið þitt í Apple Pay, eða um tilraun til skráningar kortsins með öðrum hætti án þinnar vitundar, skaltu þegar í stað hafa samband við viðskiptabankann þinn.
Hvert leita ég eftir aðstoð?
Hafðu samband við þinn viðskiptabanka eins fljótt og auðið er ef þú telur þig hafa lent í svikum.
- s. 410-4000, landsbankinn@landsbankinn.is og netspjall á https://www.landsbankinn.is
Íslandsbanki
- s. 440-4000, islandsbanki@islandsbanki.is og netspjall á https://www.islandsbanki.is
Arion banki
- s. 444-7000, netsvik@arionbanki.is og netspjall á https://www.arionbanki.is
Sé um að ræða tilkynningu eftir lokunartíma bankanna skal hringja í neyðarnúmer greiðslumiðlunarfyrirtækja:
Valitor – s. 525-2000
Borgun – s. 533-1400
Við bendum jafnframt á að tilkynna svik til lögreglunnar á netfangið cybercrime@lrh.is
Hvernig get ég varist svikum?
Kynnið ykkur fræðsluefni bankanna til að vera betur í stakk búin til að verjast svikum.
Fræðsluefni:
Landsbankinn – sjá hér
Íslandsbanki – sjá hér
Arion banki – sjá hér
Dæmi um svik sem eru í gangi núna
Tölvupóstar:
Vefsíður:
Dæmi um eitt svikamál, lið fyrir lið:
1) Beðið er um kortaupplýsingar
2) Upp kemur gluggi þar sem sagt er að verið sé að vinna úr beiðni þinni
3) Beðið er um öryggiskóða
4) Öryggiskóðinn er sagður útrunninn og þú beðinn um að slá inn nýjan öryggiskóða endurtekið