Fossar markaðir - nýtt aðildarfélag SFF
![](https://cdn.prod.website-files.com/65fc13cc50cee9777b2fd110/65fc13cc50cee9777b2fd49f_FOSSAR_LOGO-1.jpeg)
Nýlega urðu Fossar markaðir aðilar að SFF. Fossar markaðir er verðbréfafyrirtæki sem þjónustar innlenda og erlenda fjárfesta á sviði verðbréfamiðlunar, fyrirtækjaráðgjafar og eignastýringar. Fyrirtækið er með höfuðstöðvar í Reykjavík. Með aðild sinni vænta Fossar þess að fá auknar upplýsingar um fyrirhugaðar breytingar á fjármálamarkaði ásamt því að verða þátttakandi í umræðum um þróun löggjafar á fjármálamarkaði. SFF fagna inngöngu Fossa í samtökin enda er fyrirtækið góð viðbót við þá fjölbreyttu flóru fjármálafyrirtækja sem aðild eiga að samtökunum.
Vefsíða Fossa: https://fossarmarkets.com/is/