Næstum allt sem þú vilt vita um fjárfestingar

Viðskiptaráð, HR, Nasdaq og Samtök fjármálafyrirtækja standa fyrir opnum fræðslufundi um fjárfestingarÍ tilefni af World Investor Week standa HR, Nasdaq, Samtök fjármálafyrirtækja og Viðskiptaráð fyrir opnum fræðslufundi um fjárfestingar. Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 7. október kl. 16 í sal V101 í Háskólanum í Reykjavík og í beinu Facebook-streymi.Ungt fólk sem hefur áhuga á að stíga sín fyrstu skref í heimi fjárfestinga er sérstaklega boðið velkomið.Á fundinum munu eftirtalin halda stutt erindi:

  • Katrín Júlíusdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja
  • Magnús Harðarson, forstjóri NASDAQ Iceland
  • Rósa Kristinsdóttir, meðstofnandi FORTUNA Invest
  • Már Wolfgang Mixa, lektor við Háskólann í Reykjavík
  • Arnaldur Þór Guðmundsson, formaður Ungra fjárfesta

Nánari upplýsingar um fundinn má finna hér.Verið öll hjartanlega velkomin!