Málstofa um DORA reglugerðina
SFF stóð fyrir málstofu um DORA reglugerð ESB (e. Digital Operational Resilience Act) um stafrænan rekstrarlegan viðnámsþrótt fyrir fjármálageirann sem unnið er að því að lögleiða hér á landi. Lögleiðing DORA mun fela í sér auknar kröfur til aðila á fjármálamarkaði þegar kemur að rekstraröryggi, sér í lagi á sviði net-, fjarskipta- og upplýsingakerfa.
Fyrirlesarar:
- Alma Tryggvadóttir, Director og Cyber Lead í áhætturáðgjöf Deloitte.
- Ebenezer Þ. Böðvarsson, Team Lead & Senior Information Security Consultant hjá Syndis. - glærur Ebenezar á fundinum.
- Gísli Óttarsson, framkvæmdastjóri varúðareftirlits hjá fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands. - glærur Gísla á fundinum.
Fundarstjóri: Jóna Björk Guðnadóttir, yfirlögfræðingur SFF.
Málstofa SFF um DORA reglugerðina
- Mánudaginn 9. september frá kl. 9-10:30.
- Létt morgunhressing frá klukkan 8:30.
- Hús atvinnulífsins, Borgartúni 35, salurinn Hylur, 1. hæð.