Menntamorgnar Atvinnulífsins hefjast á ný

Hörður Bjarkason, sérfræðingur í fræðslumálum á viðskiptabankasviði Arion, mun kynna innleiðingu á rafrænni fræðslu í bankanum á fyrsta menntamorgni atvinnulífsins sem fer fram 3. október. Menntamorgnar eru samstarfsverkefni SFF og annara aðildarfélaga SA. Fundurinn hefst klukkan 8:15 og stendur til 9:00.Þörfin fyrir stöðuga fræðslu og endurmenntun starfsfólks hefur aukist mikið á undanförnum árum. Hröð tækniþróun eykur möguleikana á sveigjanlegum, skilvirkum og hagkvæmum valkostum þegar kemur að þessari fræðslu þar sem rafrænt námsumhverfi er í forgrunni. Með rafrænu námsumhverfi skapast lausnir og tækifæri fyrir öll fyrirtæki en ekki síst lítil og meðalstór fyrirtæki sem og fyrirtæki á landsbyggðinni.Á menntamorgnum í Húsi atvinnulífsins skapast vettvangur fyrir gagnlegar umræður um leiðir til rafrænnar fræðslu og áskoranir sem henni fylgja. Morgunfundirnir er fyrir alla sem hafa áhuga á málefninu og vilja taka þátt í þeim breytingum sem þar eru að eiga sér stað. Skráning hér.

Dagskrá

Rafræn fræðsla, hugtök og hugmyndir. Árný Elíasdóttir sérfræðingur hjá Attentus.

Tækifæri í rafrænu og stafrænu umhverfi. Berglind Ragnarsdóttir sérfræðingur á verkefnastofu um stafrænt Ísland.

Innleiðing á rafrænni fræðslu í Arion banka. Hörður Bjarkason, sérfræðingur í fræðslumálum á viðskiptabankasviði Arion banka.

Áskoranir og áherslur í rafrænni fræðslu Origo. Eva Demireva sérfræðingur hjá Origo.

Fundarstjórn Davíð Þorláksson fostöðumaður samkeppnishæfnisviðs SA.