SFF dagurinn 2025: Breyttur heimur - 9. apríl
.png)
SFF dagurinn árið 2025 fer fram miðvikudaginn 9. apríl frá 14:00-16:00 á Grand Hótel Reykjavík í salnum Háteig undir yfirskriftinni Breyttur heimur.
Hvert er hlutverk fjármálageirans á tímum vaxandi óróleika í alþjóðamálum? Hvaða afleiðingar mun þessi óróleiki hafa á fjármálastarfsemi sem er á sama tíma að ganga í gegnum fjártæknibyltingu? Hvert stefnir Evrópa í þessum efnum og hvaða þýðingu hefur það fyrir Ísland?
Dagskrá SFF dagsins 2025
Opnunarerindi
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka og formaður SFF.
Þróun samkeppnisstefnu innan Evrópu í kjölfar Draghi-skýrslunnar og áhrif þess á evrópskan bankamarkað
Dr. Gerdis Marquardt, hagfræðingur hjá Copenhagen Economics.
Evrópa á eigin fótum
Hafsteinn Hauksson, aðalhagfræðingur Kviku banka.
Varúðarsjónarmið í breyttum heimi
Gísli Óttarsson, framkvæmdastjóri varúðareftirlits Seðlabanka Íslands.
Þróun netsvika: Gervigreind og sjálfvirknivæðing í nútíma netsvikum
Magni R. Sigurðsson, fagstjóri hjá CERT-IS.
Pallborðsumræður:
Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita og fyrrverandi forstjóri Doha Bank í Katar.
Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans.
Snorri Jakobsson, hagfræðingur og eigandi Jakobsson Capital.
Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri VÍS, stýrir umræðum.
Fundarstjóri: Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF.
Boðið verður upp á léttar veitingar að fundi loknum.
Fundurinn er öllum opinn en skráning er nauðsynleg.