Grunnskóli Fjallabyggðar sigurvegari Fjármálaleikana 2025

Grunnskóli Fjallabyggðar fór með sigur af hólmi í Fjármálaleikunum í ár, landskeppni grunnskólanna í fjármálalæsi, sem fór fram í áttunda sinn 17.-24. mars í tilefni af alþjóðlegri fjármálalæsisviku. Vel á annað þúsund nemenda í grunnskólum um land allt tóku þátt. Þetta var í annað skiptið sem krakkarnir í Fjallabyggð sigra í keppninni en fast á eftir þeim fylgdu Vogaskóli, Hlíðaskóli og Austurbæjarskóli. Ingi Steinar Ellertsson, svæðisstjóri Arion banka, afhenti nemendum í Grunnskóla Fjallabyggðar verðlaunin fyrir hönd Fjármálavits.

Grunnskóli Fjallabyggðar mun senda tvo fulltrúa fyrir Íslands hönd í Evrópukeppni ungmenna í fjármálalæsi sem fram fer í Brussel í maí.

Í Fjármálaleikunum er keppt í fjölbreyttum spurningum í gegnum netleik sem hannaður er með þekkingarramma PISA í huga. Spurningarnar snúast m.a. um að geta reiknað vexti á lánum og sparnaði, að vita um hvað tryggingar snúast, þekkja réttindi og skyldur á vinnumarkaði, átta sig á lífeyrissparnaði og kunna ýmislegt um t.d. gengissveiflur og verðlagsþróun.

„Það er mjög ánægjulegt að sjá bæði fjölmenna skóla og úr nýjum sveitarfélögum koma sterka inn í keppnina í ár en markmiðið með keppni sem þessari er einmitt að leyfa sem flestum nemendum að spreyta sig á skemmtilegum spurningaleik um fjármál og minna um leið á áhersluna á gott fjármálalæsi,“ segir Kristín Lúðvíksdóttir, verkefnisstjóri Fjármálavits, fræðsluvettvangs SFF um fjármálalæsi, sem stendur að keppninni. Fjármálavit er einnig stutt af Landssamtökum lífeyrissjóða.

Stelpur skora hærra en strákar

Kristín segir að heilt yfir standi nemendurnir sem taki þátt í keppninni nokkuð vel þegar kemur að þekkingu á fjármálum. Þegar rýnt er í niðurstöðurnar skori stelpur aðeins hærra en strákar og stelpur sem búa á höfuðborgarsvæðinu skori hæst.

„Það var mikill metnaður í keppendum, margir af efstu skólunum mjög háir og afar mjótt á munum,“ segir Kristín. „Þau eru almennt góð í þáttum er snúa að persónulegum fjármálum og heimilisrekstri og nærumhverfi þeirra. En þegar kemur að spurningum um hvað felst í því að vera á vinnumarkaði og flóknari fjármálahugtökum þá fara málin að verða flóknari. Við sjáum það á niðurstöðum undanfarin ár að skólarnir sem eru að skora hæst eru flestir að taka fjármálalæsi föstum tökum í kennslunni og þar skiptir hvatning kennaranna sköpum.“

Hins vegar sé staða þeirra nemenda sem ekki taki þátt í leikunum og fái ekki fjármálafræðslu á sinni skólagöngu meira áhyggjuefni. Freistingarnar fyrir ungt fólk séu fleiri en áður og auðvelt getur verið að gera mistök í fjármálum snemma á lífsleiðinni sem fylgt geta ungu fólki út í lífið. „Ég er mjög stolt af nemendum mínum og sem kennari hef ég áhuga á fjármálalæsi og finnst mikilvægt að nemendur fái góða kennslu í því,“ segir Sigurlaug Ragna Guðnadóttir, kennari sigurvegaranna í grunnskóla Fjallabyggðar. „Í skólanum mínum tökum við kennslu í fjármálalæsi alltaf í 10. bekk og mér finnst frábært að hafa Fjármálaleikana því þeir auka áhuga nemenda. Ef kennari hefur áhuga þá er líklegra að nemendur fái áhuga,“ bætir  Sigurlaug við.

Gefið 19 þúsund bækur

Fjármálavit er fræðsluvettvangur með áherslu á námsefni í fjármálalæsi. Tilgangur vettvangsins er að efla fjármálalæsi hjá ungu fólki með áherslu á sparnað og fyrirhyggju. Markmiðið er að fjármálalæsi verði vel skilgreint í aðalnámskrám grunn- og framhaldsskóla. Til viðbótar við að halda Fjármálaleikana hefur Fjármálavit gefið skólum og kennurum sem þess óska kennslubækur og kennsluefni og haldið námskeið fyrir kennara með það að markmiði að auka færni þeirra í kennslu í fjármálalæsi. Alls hefur Fjármálavit gefið um nítján þúsund bækur um fjármál ungs fólks á síðustu árum.

Umfjöllunin birtist fyrst í sérblaði Viðskiptablaðsins um SFF daginn 2025.

Sérblað Viðskiptablaðsins um SFF daginn í heild sinni.

Nánar um fjármálaleikana á vef Fjármálavits.