Aðalfundur SFF 17. apríl næstkomandi
Aðalfundur SFF verður haldinn þann 17. apríl næstkomandi klukkan 15:30 í húsi atvinnulífsins.
Hefðbundin dagskrá er á aðalfundinum sbr. samþykktir samtakanna:
1. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár.
2. Reikningar bornir upp til samþykktar.
3. Kosning formanns stjórnar.
4. Kosning annarra stjórnarmanna
5. Kjör endurskoðandað.
6. Önnur mál:
Löglega hefur verið boðað til fundarins.Í kjölfarið á fundinum mun Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra eiga samtal við félagsmenn um efnahagsmál almennt, stöðu í ríkisfjármálum og verkefnið framundan að ná tökum á verðbólgunni.
Húsið opnar 16:15 með kaffi og meðlæti vegna félagsfundarins sem hefst klukkan 16:30.