Eflum samkeppni - aukum skilvirkni - 27. mars

Hvernig er hægt að efla samkeppni og auka skilvirkni? Um þetta verður rætt á fundi á Hilton Reykjavik Nordica, Suðurlandsbraut 2, fimmtudaginn 27. mars. Fundurinn er á vegum Háskólans í Reykjavík, í samstarfi við SA, SFF, SAF, Samorku, SFS, SI, SVÞ og Viðskiptaráð. Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra flytur opnunarávarp.

Framsögumenn verða:

  • Antoine Winckler
    Yfirráðgjafi hjá Cleary Gottlieb Steen & Hamilton
    EU merger control, a procedural analysis: what works and what doesn‘t?
  • Katie Curry
    Hagfræðingur / meðeigandi hjá RBB Economics
    Merger control and international competitiveness: conflicting priorities?
  • Heimir Örn Herbertsson
    Sérfræðingur í samkeppnisrétti við Háskólann í Reykjavík og hæstaréttarlögmaður
    Merger control enforcement in Iceland – the eye of the needle?

Að erindum loknum verða pallborðsumræður framsögumanna ásamt Páli Gunnari Pálssyni, forstjóra Samkeppniseftirlitsins. Fundarstjórn og stjórn pallborðsumræðna verður í höndum Ásu S. Hallsdóttur, yfirlögfræðings samkeppnismála hjá Volvo í Svíþjóð.

Húsið opnar kl. 8:30 þar sem boðið verður upp á morgunmat fyrir alla fundargesti. Dagskráin hefst svo stundvíslega kl. 9 og lýkur kl. 12.

Skráning á vef SA.