Arion banki hlýtur verðlaunin Menntafyrirtæki ársins

Arion banki hlaut í dag verðlaun sem Menntafyrirtæki ársins á Menntadegi atvinnulífsins sem fór fram á Hilton Nordica í dag undir yfirskriftinni Störf á tímamótum. Þá hlaut Alda Menntasprotann 2025 en Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, afhentu verðlaunin í dag.
Arion banki – Menntafyrirtæki ársins
Í umfjöllun dómnefndar kemur fram að Arion banki reki öflugt og metnaðarfullt fræðslukerfi sem nýtir fjölbreyttar og nýjar leiðir til að virkja kraftinn í stórum og fjölbreyttum hópi starfsfólks. Starfsfólk þróar námsefni sjálft á frumlegan hátt, fræðsluvísitala er innbyggð í fræðslustarfið og vel er haldið utan um starfsþróun innan fyrirtækisins, svo fátt eitt sé nefnt. Með verkefni eins og „Konur fjárfestum!“ tengir bankinn að auki fræðslustarfið við samfélagslega ábyrgð. Ljóst sé að stefnumiðuð og markviss vinna í fræðslumálum hjá Arion banka skili sér í framsæknu og faglegu fræðslustarfi og þar af leiðandi ánægðu starfsfólki.
Alda - Menntasproti ársins
Alda býður upp á hugbúnaðarlausn með leikjavæddum örnámskeiðum sem efla vinnustaði í aðgerðum er varða fjölbreytileika og inngildingu, og stuðlar þannig að betra starfsumhverfi. Kjarninn í starfsemi Öldu er nýsköpun í fræðslu og menntun og með stuðningi gervigreindar er örfræðsluáætlun sérsniðin fyrir hvern vinnustað. Alda var stofnuð árið 2022 en lausnin var gefin út fyrir rúmlega ári og á þessum stutta tíma hefur náðst frábær árangur.
Í umfjöllun dómnefndar kemur fram að Alda sé leiðandi í nýsköpun í fræðslu og menntun og leggur sín lóð á vogarskálarnar til að efla fjölbreytileika og inngildingu með gagnadrifnum fræðslulausnum á vinnustöðum og samfélaginu í heild.
Menntadagur atvinnulífsins er samstarfsverkefni Samtaka atvinnulífsins, Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu, Samorku, Samtaka iðnaðarins, Samtaka verslunar og þjónustu, Samtaka ferðaþjónustunnar og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.