Breytt fyrirkomulag endurmenntunar vottaðra fjármálaráðgjafa

Nýverið fjallaði stjórn SFF um tillögu stýrihóps vottunar fjámálaráðgjafa um að fella niður formlegar kröfur um endurmenntun til þess að vottaðir fjármálaráðgjafar geti endurnýjað vottun sína.  Stjórn SFF féllst á tillögu stýrihópsins um breytt fyrirkomulag.

Þau sem hafa lokið námi til vottunar fjármálaráðgjafa, og staðist próf til vottunar, munu áfram halda vottun sinni í fjármálaráðgjöf. Endurmenntun vottaðra fjármálaráðgjafa verður framvegis á hendi hvers fyrirtækis og hluti af fræðslustarfi þess.