Heiðrún Jónsdóttir ráðin framkvæmdastjóri SFF

Heiðrún Jónsdóttir, lögmaður hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja, SFF. Hún tekur við starfinu af Katrínu Júlíusdóttur sem hefur verið framkvæmdastjóri frá árinu 2016. Heiðrún hefur strax störf.

Heiðrún hefur starfað sem lögmaður í áraraðir og hefur víðtæka stjórnunarreynslu úr atvinnulífinu. Hún var í stjórn Íslandsbanka frá 2016 síðast sem varaformaður bankans en áður var hún stjórnarformaður hjá Íslenskum verðbréfum 2014-2016 og hjá Gildi lífeyrissjóði 2008-2014, síðast sem stjórnarformaður. Þá hefur hún m.a. setið í stjórnum Regins, Icelandair, Símans, Olís, Norðlenska, Reiknistofu bankanna, Ístaks, Arion verðbréfavörslu og Royal Arctic Line á Grænlandi. Hún var framkvæmdastjóri hjá Eimskip á árunum 2006-2012 þar sem hún stýrði m.a. starfsmannamálum og markaðsmálum. Þá var hún framkvæmdastjóri lögmannsstofunnar Lex á árunum 2003-2005, upplýsingafulltrúi Símans 2001-2003 og starfsmannastjóri og lögfræðingur hjá KEA 1998-2001. Þá hefur hún kennt við lagadeildir Háskólans í Reykjavík og Háskóla Íslands og víðar.

Heiðrún útskrifaðist sem lögfræðingur frá Háskóla Íslands árið 1995. Hún fékk lögmannsréttindi 1996 og löggildingu í verðbréfamiðlun 2006. Hún stundaði nám við IESE Business School í Barcelona 2016-2017.Innan Samtaka fjármálafyrirtækja eru 25 aðildarfélög. Þar starfa nú 6 starfsmenn. Stjórnarformaður er Lilja Björk Einardóttir, bankastjóri Landsbankans.

Heiðrún Jónsdóttir:

„Ég hlakka til að taka til starfa hjá Samtökum fjármálafyrirtækja og með því góða fólki sem þar starfar. Innan aðildarfélaganna starfar öflugur, fjölbreyttur og kraftmikill hópur sem ég hlakka til að starfa með. Verkefnin eru fjölbreytt og afar áhugaverð. Fjármálafyrirtæki gegna mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi og markaðurinn er síbreytilegur og fjölbreyttur.“

Lilja Einarsdóttir, stjórnarformaður SFF:

„Heiðrún Jónsdóttir er reynslumikill og öflugur stjórnandi og það þar mikill fengur fyrir okkur að fá hana til liðs við SFF. Það eru alltaf áskoranir og krefjandi verkefni á borði samtakanna sem telja 25 verðbréfafyrirtæki, tryggingarfélög, greiðslumiðlunarfyrirtæki, sparisjóði og banka. Um leið og ég býð Heiðrúnu velkomna þakka ég Katrínu Júlíusdóttur aftur kærlega fyrir góð störf fyrir samtökin og óska henni velfarnaðar.“