Ingvar Haraldsson ráðinn samskiptastjóri SFF

Ingvar Haraldsson hefur verið ráðinn samskiptastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF).

Ingvar hefur starfað á Viðskiptablaðinu frá árinu 2017, þar af sem aðstoðarritstjóri frá árinu 2018 og viðskiptablaðamaður á Fréttablaðinu og Vísi frá árinu 2014. Ingvar starfaði jafnframt sem stundakennari við Háskólann í Reykjavík á árunum 2018-2020 þar sem hann kenndi áfanga um sögu hagfræðikenninga. Þá hefur Ingvar setið í stjórn Blaðamannafélags Íslands undanfarið ár. Hann hefur þegar hafið störf hjá SFF.

Ingvar lauk meistaragráðu í hagsögu frá London School of Economics árið 2017 og er með BA gráðu í sagnfræði með hagfræði sem aukagrein frá Háskóla Íslands frá árinu 2015. Hann hefur auk þess lokið prófi til verðbréfaréttinda.

Ingvar var í mars síðastliðnum tilnefndur til Blaðamannaverðlauna ársins 2022 í flokki rannsóknarblaðamennsku vegna umfjöllunar um styrktarsjóð og fjármál Sonju de Zorrilla.

„Íslensk fjármálafyrirtæki gegna afar mikilvægu hlutverki í samfélaginu og ég hlakka til að takast á við krefjandi og þýðingarmikil verkefni með aðildarfélögum SFF sem og öflugu og reynslumiklu samstarfsfólki hjá samtökunum,” segir Ingvar.

„Við erum sérlega ánægð með að fá Ingvar til liðs við okkur í þau spennandi verkefni sem framundan eru. Ingvar hefur afar góðan bakgrunn í þau verkefni sem eru framundan og við hlökkum til samstarfsins.” segir, Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja.

Innan Samtaka fjármálafyrirtækja eru 25 aðildarfélög en sex starfsmenn eru á skrifstofu samtakanna. Stjórnarformaður er Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka.