Ingvar ráðinn samskiptastjóri SFF

Ingvar Haraldsson hefur verið ráðinn samskiptastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF).Ingvar hefur verið aðstoðarritstjóri Viðskiptablaðsins frá árinu 2018 og viðskiptablaðamaður á Viðskiptablaðinu, Fréttablaðinu og Vísi frá árinu 2014. Ingvar starfaði jafnframt sem stundakennari við Háskólann í Reykjavík á árunum 2018-2020 þar sem hann kenndi áfanga um sögu hagfræðikenninga. Þá hefur Ingvar setið í stjórn Blaðamannafélags Íslands undanfarið ár. Hann hefur þegar hafið störf hjá SFF.Ingvar lauk meistaragráðu í hagsögu frá London School of Economics árið 2017 og er með BA gráðu í sagnfræði með hagfræði sem aukagrein frá Háskóla Íslands frá árinu 2015. Hann hefur auk þess lokið prófi til verðbréfaréttinda.Ingvar var í mars síðastliðnum tilnefndur til Blaðamannaverðlauna ársins 2022 í flokki rannsóknarblaðamennsku vegna umfjöllunar um styrktarsjóð og fjármál Sonju de Zorrilla.„Íslensk fjármálafyrirtæki gegna afar mikilvægu hlutverki í samfélaginu og ég hlakka til að takast á við krefjandi og þýðingarmikil verkefni með aðildarfélögum SFF sem og öflugu og reynslumiklu samstarfsfólki hjá samtökunum,” segir Ingvar.„Við erum sérlega ánægð með að fá Ingvar til liðs við okkur í þau spennandi verkefni sem framundan eru hjá samtökunum. Þekking hans á þeim sviðum sem aðildarfélög okkar starfa innan er afar mikils virði og við hlökkum til samstarfsins,” segir Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja.