Látum jólin ganga í beinni á Stöð 2
![](https://cdn.prod.website-files.com/65fc13cc50cee9777b2fd110/65fc13cc50cee9777b2fd47c_latumjolinganga.jpeg)
Látum jólin ganga er jóla-, skemmti-, tónlistar- og viðtalsþáttur í tengslum við átakið Íslenskt - láttu það ganga sem verður í beinni útsendingu í kvöld kl. 19.35 á Stöð 2 pg Vísi. Þáttastjórnendurnir Logi Bergmann Eiðsson og Sigrún Ósk Kristjánsdóttir verða á stóra sviði Borgarleikhússins og fá til sín fjölmarga gesti.
Markmiðið með þættinum er að stappa stálinu í þjóðarsálina, hvetja landann til að kaupa íslenska framleiðslu, íslenska hönnun, innlendar vörur og þjónustu og þá af innlendum vefverslunum frekar en erlendum keppinautum. Þeir Fannar Sveinsson og Benedikt Valsson verða einnig á vettvangi og gera sitt allra besta til að láta hjól atvinnulífsins snúast. „Við ætlum að vera jákvæð, skemmtileg, í jólaskapi og hvetja hvert annað til að hafa keðjuverkandi áhrif og halda atvinnustarfsemi gangandi, þrátt fyrir ýmis högg á þessu ári. Maður verður nefnilega að vera léttur,” segir Logi.
Þátturinn, sem Skot Productions framleiðir, er styrktur af Samtökum atvinnulífsins og aðildarfélögum sem og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.
Á Facebook er hægt að nálgast viðburðinn: https://www.facebook.com/events/3436548136414850
![](https://cdn.prod.website-files.com/65fc13cc50cee9777b2fd110/65fc13cc50cee9777b2fd47c_latumjolinganga.jpeg)