Lilja Björk nýr formaður SFF
![](https://cdn.prod.website-files.com/65fc13cc50cee9777b2fd110/65fc13cc50cee9777b2fd417_2018-02-21-Lilja-Bjork-1680.jpeg)
Á aðalfundi Samtaka fjármálafyrirtækja fyrr í þessum mánuði var Lilja Björk Einarsdóttir kjörin formaður stjórnar samtakanna til næstu tveggja ára.Þá var jafnframt á aðalfundinum kjörin stjórn til næstu tveggja ára og í henni sitja ásamt Lilju; Benedikt Gíslason, Birna Einarsdóttir, Helgi Bjarnason, Marinó Örn Tryggvason, Sigurður Viðarsson, Sæmundur Sæmundsson, Vilhjálmur Pálsson og Þórleifur Stefán Björnsson.