Málstofu frestað til 14. febrúar - Hvað er MREL og MREL skuldabréf?
![](https://cdn.prod.website-files.com/65fc13cc50cee9777b2fd110/65fc13cc50cee9777b2fd4b1_48804220457_75c9f4cc9c_w.jpeg)
Vegna appelsínugulrar veðurviðvörunar var málstofunni frestað um viku. Nýr tími er 14. febrúar kl 8:30 - 10:00
SFF standa fyrir málstofu um MREL og tengt regluverk.Á málstofunni munu Flóki Halldórsson, forstöðumaður skrifstofu skilavalds Seðlabanka Íslands, og Hjálmar S. Brynjólfsson, lögfræðingur á skrifstofu skilavalds Seðlabanka Íslands, flytja erindið:
Nýjar fjármagnskröfur til íslenskra banka vegna skilaáætlana (MREL)
Að loknu erindi þeirra gefst kostur á spurningum
Þriðjudaginn 14. febrúar 8:30 - 10:00
Léttar morgunveitingar frá 8:15
Hús atvinnulífsins Borgartúni 35, fundarsalur: Hylur