Menntamorgunn atvinnulífsins 5. janúar

SFF vekja athygli á Menntamorgnum atvinnulífsins sem hefja göngu sína á ný fimmtudaginn 5. Janúar undir yfirskriftinni Metnaðarfullt fræðslustarf fyrirtækja – lykill að framsæknu atvinnulífi.

Fjallað verður um tilnefningarferli menntaverðlauna atvinnulífsins og hvernig fyrirtæki geta sett sér skýr markmið í menntamálum. Þá koma verðlaunahafar fyrri ára og fara yfir áherslur sínar í menntamálum innan fyrirtækjanna.

Fundurinn er hugsaður sem hvatning fyrir fyrirtæki og upptaktur að Menntadegi atvinnulífsins sem fer fram 14. febrúar nk. SA og öll aðildarsamtök standa að menntamorgnum sem og Menntadegi atvinnulífsins.

Öll velkomin.

Skráning í mætingu eða streymi hér: Metnaðarfullt fræðslustarf fyrirtækja (sa.is)