Niðurfærsla lána heimila 196 milljarðar króna um áranmót

Lán heimila höfðu í lok árs 2011 verið færð niður um rúma 196 milljarða króna frá stofnun nýju bankanna. Til samanburðar nam niðurfærslan samtals tæpum 144 milljörðum króna í lok júlímánaðar og 172,6 milljörðum króna í lok september. Í októbermánuði nam niðurfærsla lána um 9,4 milljörðum króna, 11,5 milljörðum króna í nóvember og 2,9 milljörðum í desember, samkvæmt upplýsingum sem Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) hafa aflað meðal aðildarfélaga sinna og hjá Íbúðalánasjóði. Tölur frá lífeyrissjóðum miðast við lok september. Niðurfærsla fasteignalána síðustu þrjá mánuði ársins nam um 12 milljörðum króna vegna 110% leiðarinnar, um 11,6 milljörðum króna vegna endurútreiknings lána og tæplega 200 milljónir króna eru til komnar vegna sértækrar skuldaaðlögunar.Til viðbótar þeirri niðurfærslu sem rakin er hér að ofan, hafa fjármálafyrirtæki boðið upp á önnur úrræði sem lækkað hafa eftirstöðvar skulda viðskiptavina þeirra.Um 88.400 mál afgreidd í lok árs. Tæplega 1.700 mál enn í vinnsluUm áramót var búið að afgreiða tæplega 15.589 umsóknir af þeim 16.475 sem bárust vegna 110% leiðarinnar. Innan við 900 umsóknir voru enn í vinnslu og má því ljóst vera að senn lýkur útreikningum samkvæmt þessu úrræði. Niðurfærsla samkvæmt 110% leiðinni nam 12 milljörðum króna á síðasta ársfjórðungi 2011 og nemur því samtals rúmum 43,6 milljörðum króna frá ársbyrjun 2009. Heildartalan vegna þessa úrræðis á enn eftir að hækka þó áhrifin af aðgerðum fjármálafyrirtækja í 110% leið séu að stærstum hluta komin fram. Rétt er að ítreka að tölur frá lífeyrissjóðum miðast við lok september.Af 1.329 umsóknum um sértæka skuldaaðlögun var búið að afgreiða 903 mál um áramót. Samþykktar höfðu verið 824 umsóknir en 79 hafnað. 406 mál voru enn í vinnslu. Heildarniðurfærsla vegna þessa úrræðis nam í lok árs rúmum 6,2 milljörðum króna.Fjármálafyrirtækin höfðu um áramót lokið endurútreikningi rúmlega 70 þúsund gengistryggðra lána. Þar af eru ríflega 13 þúsund fasteignalán og um 57 þúsund lán vegna bifreiðaviðskipta. Heildarniðurfærsla fasteignalána vegna endurútreiknings nam um áramót 108 milljörðum króna. Lán vegna bifreiðaviðskipta hafa verið færð niður um 38,5 milljarða króna við endurútreikning. Enn eru um 340 lán sem eftir er að ljúka endurútreikningi á. Þar af eru 280 vegna fasteigna.33 milljarðar króna í frystingu hjá tvö þúsund heimilumÍ ársbyrjun 2011 voru um 4.700 heimili með samtals 7.600 lán í frystingu hjá fjármálafyrirtækjum. Í árslok var fjöldi lánanna kominn niður í rúmlega 3.000 og fjöldi heimila þar á bak við voru um tvö þúsund. Eftirstöðvar þessara lána námu um áramót um 33 milljörðum króna.Hafa ber í huga þegar þessar tölur eru skoðaðar að lántakar kunna í sumum tilvikum að hafa nýtt sér fleiri en eitt af þeim úrræðum sem staðið hafa til boða.Sjá ennfremur meðfylgjandi töfluSamandregin skýrsla um skuldaaðlögun heimilaStaða miðað við lok desember 2011

Umsóknir

Samþykktar

Hafnað

Í vinnslu

Niðurfærsla m.kr.

Niðurfærsla í lok júlí

Niðurfærsla í lok september

1)110% leið samtals

16.475

11.737

3.852

886

43.666

18.651

31.668

a) 110% leið skv. samkomulagi 3. des 2010

14.965

10.227

3.852

886

33.802

b) 110% leið, 2010, fyrir 3. des. 2010

1.510

1.510

0

0

9.864

Þar af Íbúðalánasjóður

5.700

2.745

2.727

228

6.968

Þar af lífeyrissjóðir (septembertölur)

407

73

238

96

198

Umsóknir

Samþykktar

Hafnað

Í vinnslu

Niðurfærsla m.kr.

2)Sértæk skuldaaðlögun

1.329

824

79

406

6.213

5.573

6.074

Fjöldi lána

Lokið

Í vinnslu

Heimili

Niðurfærsla m.kr.

3)Endurútreikningur gengistryggðra lána

Íbúðalán

13.366

12.846

280

7.778

108.050

78.998

96.428

Lán vegna bifreiðaviðskipta

57.280

57.219

61

41.801

38.500

40.648

38.500

Lok ársins 2010*)

Lok ársins 2011

Fjöldi lána

Fjöldi heimila

Fjöldi lána

Fjöldi heimila

Eftirst.lána lok árs 2011 m.kr.

4)Lán í óreglulegum greiðslum (frystingar)

7.585

4.674

3.056

2.003

33.139

Fjöldi mála

Samþykktar

Hafnað

Í vinnslu

Í m.kr.

Niðurfærslur og endurútreikningur alls

88.450

82.626

3.931

1.633

196.429

143.870

172.670

*) Gögn ekki tiltæk frá öllum