Ný tegund svika
Glæpahringir sem herja á fólk til að komast yfir aðgangsorð að heimabanka og kortaupplýsingum verða sífellt tæknilegri og aðferðir þeirra trúverðugri. Því gildir það sama um varnaðarorð og góða vísu – þau verða aldrei of oft kveðin.
Borið hefur á því að undanförnu að svikarar hringi í fólk og hafi af þeim fé með ýmis konar blekkingum. Það nýjasta er að hringt er úr, að því virðist, íslenskum símanúmerum en svikararnir eru þó enskumælandi.
Tilboð þeirra hljóma ansi oft of góð til að vera sönn, og þá er það einmitt málið, þau eru ekki sönn heldur svik.
Algengt er að í símtölunum bjóði hinir enskumælandi fjársvikarar upp á fjárfestingatækifæri í rafmynt, eða tilkynni að sá eða sú sem hringt er í, eigi eignir í rafmynt. Þá er fólki boðið að fá greitt fyrir að vera milliliðir í fjárfestingum í rafmynt.
Í einhverjum tilvikum hafa svikararnir fengið fólk til að hlaða niður forritum á borð AnyDesk, TeamViewer eða Iperius Remote á tækin sín sem veita svikurunum í kjölfarið fullan aðgang að tækjum viðkomandi. Fólki er því eindregið ráðið gegn því að verða við beiðnum um að sækja þessi forrit eða önnur fyrir snjallsíma eða tölvur.
Þá hefur fólk verið platað til að gefa upp leyninúmer rafrænna skilríkja og þannig komast svikahrapparnir inn á heimabanka og geta tæmt reikninga og misnotað kreditkort. Svikarar hafa einnig notað greiðslukortaupplýsingar til að kaupa rafmynt í rafmyntakauphöllum. Með þessu eru fjármunir tapaðir og fólk situr uppi með sárt ennið.
Hér eru nokkur varnaðarorð sem eiga við nú sem endranær:
- Aldrei gefa upp lykilorð inn á rafræn skilríki né staðfesta eitthvað nema vera þess fullviss um hvað er verið að samþykkja.
- Aldrei samþykkja innskráningar eða aðgerðir í netbanka/appi s.s. millifærslur og kortafærslur nema vera þess fullviss að þú sért raunverulega að framkvæma þessar aðgerðir.
- Aldrei samþykkja að hlaða niður forritum eða fara inn á síður sem þið þekkið ekki. Það getur verið að þú sért að veita utanaðkomandi svikara fullan aðgang að símanum þínum.
- Aldrei gefa upp leyniorð eða kortaupplýsingar.
- Aldrei samþykkja að verða milliliðir í einhverjum fjármálagerningum sem þið þekkið ekki, jafnvel gegn greiðslu.
- Aldrei falla fyrir gylliboðum sem eru einfaldlega of góð til að vera sönn. Það eru allar líkur á því að það séu svik.
- Ef þú færð símtal sem er tortryggilegt, slíttu því hið snarasta. Heiðarleg tortryggni getur borgað sig. Svikarar geta verið afar sannfærandi.
- Hafðu strax samband við bankann þinn og lögreglu ef þú telur að þú hafir orðið fyrir svikum.
Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu.