Áhyggjuefni ef sektarfjárhæðir eru hlutfallslega hærri á Íslandi en í Evrópu
Rætt var við Jónu Björk Guðnadóttur, yfirlögfræðing SFF, í umfjöllun Viðskiptablaðsins um nýlega skýrslu Evrópsku verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunarinnar (ESMA) um sektir og viðurlög gagnvart fjármálafyrirtækjum á evrópska efnahagssvæðinu á málefnasviði ESMA. Í frétt Viðskiptablaðsins kemur fram að sektir gagnvart íslenskum fjármálafyrirtækjum á síðasta ári hafi numið um 11% af heildarsektarfjárhæðum á evrópska efnahagssvæðinu á málefnasviði ESMA. Þannig hafi heildarsektarfjárhæð gagnvart íslenskum fjármálafyrirtækjum verið sú næst hæsta á EES-svæðinu á eftir Frakklandi. Til samanburðar sé íbúafjöldi Íslands innan við 0,1% af íbúafjölda EES-svæðisins.
Í samtali við Viðskiptablaðið segir Jóna Björk Guðnadóttir, yfirlögfræðingur SFF, að það sé afar mikilvægt að íslenskur fjármálamarkaður starfi við bæði sambærilegt regluverk og starfsumhverfi og tíðkast í Evrópu. „Það er áhyggjuefni ef sektarfjárhæðir á fjármálamarkaði hér á landi eru hlutfallslega hærri en það sem tíðkast almennt í Evrópu. Þá er ávallt mikilvægt að eftirlitsaðilar gæti meðalhófs þegar kemur að því að beita viðurlögum. Það kann einnig verið ástæða til að skoða hvort þyngri sektarheimildir hafi verið lögfestar hér á landi en tíðkast í nágrannaríkjunum. Í því samhengi vekur athygli að ESMA tiltaki að þörf sé á að samræma hvernig viðurlögum sé beitt af hálfu fjármálaeftirlitsstofnana á EES-svæðinu. Eðlilegt er að Fjármálaeftirlitið taki til sérstakrar skoðunar hvað skýri þau atriði sem fram koma í skýrslu ESMA,” segir Jóna Björk við Viðskiptablaðið.