Nýr formaður SFF kosinn á aðalfundi
17. apríl sl. var haldinn aðalfundur SFF. Á fundinum lét Lilja B. Einarsdóttir bankastjóri Landsbankans af störfum sem formaður stjórnar SFF en mun halda áfram í stjórninni. Benedikt Gíslason bankastjóri Arionbanka var kjörinn formaður stjórnar í hennar stað. Aðrir stjórnarmenn eru Hermann Björnsson varaformaður, Jónína Gunnarsdóttir og Stefán Bjarnason.
Á fundinum voru hefðbundin aðalfundarstörf og fór Lilja B. Einarsdóttir yfir helstu atriði í rekstri samtakanna á síðasta ári og helstu áskoranir og verkefni framundan.
Vel var mætt á fundinn eða fyrir um 95% miðað við atkvæðavægi.Meðfylgjandi eru hér glærur frá fundinum í gær: Glærur