Óskað eftir tilnefningum til Kuðungsins
![](https://cdn.prod.website-files.com/65fc13cc50cee9777b2fd110/65fc13cc50cee9777b2fd45c_Kudungurinn-2019.jpeg)
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnun, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári eru þess verðug að hljóta umhverfisviðurkenninguna Kuðunginn fyrir árið 2020. Kuðungurinn verður afhentur í tengslum við Dag umhverfisins.Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunni. Fyrirtæki og stofnanir geta bæði tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum.Við mat á viðurkenningarhöfum er horft til eftirfarandi þátta: Umhverfisstjórnunar, innleiðingar nýjunga í umhverfisvernd, losun gróðurhúsalofttegunda, minni efnanotkunar, lágmörkunar úrgangs, mengunarvarna, umhverfisvænni þróun á vöru eða þjónustu, framlags til umhverfismála, samstarfs í umhverfismálum og vinnuumhverfis.Tillögur skulu berast umhverfis- og auðlindaráðuneytinu eigi síðar en 22. mars nk. merktar „Kuðungurinn“ á netfangið uar@uar.is eða með pósti í umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík.Á síðasta ári hlaut verkfræðistofan Efla viðurkenningu fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á árinu 2019.Upplýsingar um fyrri verðlaunahafa