Stafræn námskeið um fjármálalæsi

Fjármálavit og Opni háskólinn í háskólanum í Reykjavík hafa unnið saman að gerð stafrænna námskeiða um fjármálalæsi.

Námskeiðin, sem eru fjögur talsins, er ætlað að veita grunnskilning á þeim fjárhagslegu ákvörðunum sem hver og einn getur þurft að taka í lífinu. Farið er yfir fjármál heimilisins frá mörgum sjónarhornum. Til dæmis eru eigin fjármál skoðuð út frá reglulegum tekjum og útgjöldum, fjallað er um sparnaðar -og fjárfestingaleiðir til lengri og skemmri tíma og hlutverk lífeyrissparnaðar, og horft á eiginleika lána og þá þætti sem gott er að horfa til áður en lán er tekið.

Á sama tíma og námskeiðunum er ætlað að leggja grunn að skilningi á fjármálum heimilis, lántökum og fjárfestingum fyrir alla almenna þátttakendur, þá eru námskeiðin jafnframt framleidd til að búa kennara út með staðgott veganesti til að kenna grunn – og framhaldsskólanemum mikilvægar undirstöður í fjármálum og styður það við eina af megin áherslunum í starfsemi Fjármálavits sem er að veita kennurum innblástur og stuðning í að kenna fjármálalæsi.

Fjármálavit er fræðsluvettvangur rekinn af Samtökum fjármálafyrirtækja með stuðningi Landssamtaka lífeyrissjóða og hefur þann tilgang að bæta fjármálalæsi ungs fólks og stuðla að upplýstri ákvarðanatöku í fjármálum með áherslu á sparnað og fyrirhyggju.

Að gerð námskeiðanna komu sérfræðingar m.a. úr fjármálafyrirtækjum, lífeyrissjóðum, frá Umboðsmanni skuldara og VR. Myndin er tekin í Opna háskólanum í háskólanum í Reykjavík þegar námskeiðin voru kynnt á dögunum.