Úrslit Fjármálaleikanna 2022

Verðlaunin til mannúðarmála í Úkraínu

Það var ánægjuleg stund í Grunnskóla Fjallabyggðar þegar nemendum 10. bekkjar voru veitt verðlaun fyrir sigur í Fjármálaleikunum 2022. Leikarnir, sem eru spurningakeppni milli grunnskóla í fjármálalæsi, eru haldnir ár hvert þar sem nemendur á unglingastigi víðs vegar að af landinu taka þátt, en í ár voru það um 800 nemendur í 33 grunnskólum. Hörð samkeppni var um þrjú efstu sætin en það voru Eskifjarðarskóli og Vogaskóli sem höfnuðu í öðru og þriðja sæti.

Þau Elsa Guðrún Jónsdóttir og Helgi Jóhannsson fulltrúar fjármálaleikanna komu í Grunnskóla Fjallabygggðar og veittu nemendum verðlaunin sem eru farandbikar og peningaupphæð að upphæð 150 þúsund krónur. Nemendur bekkjarins hafa ákveðið að gefa hluta af upphæðinni til mannúðarmála í Úkraínu. Framundan er síðan Evrópukeppni Fjármálaleikanna og mun bekkurinn tilnefna tvo fulltrúa til að taka þátt í þeirri keppni sem fram fer á netinu þann 10. maí.

Grunnskóli Fjallabyggðar hefur staðið sig vel í leikunum undanfarin ár og er árangurinn ekki síður kennararns sem hvetur nemendur áfram. Glæsilegur árangur og við óskum þeim innilega til hamingju.