Vörumst svik í sumarfríinu

Mörg dæmi er nú um netsvikatilraunir og því biðjum við fólk um að vera á varðbergi. Fólk og fyrirtæki geta verið sérstaklega berskjölduð gagnvart netsvikum þegar slakað er á í sumarfríinu.Dæmi um nýlegar netsvikatilraunir eru að neytendur fá smáskilaboð um að von sé á pakka frá flutningafyrirtæki sem greiða þurfi fyrir líkt og sjá má hér að neðan:

Mikilvægt er að veita ekki upplýsingar um kortanúmer eða aðgangsupplýsingar tengdum heimabanka í slíkum tilfellum. Hafi fólk veitt slíkar upplýsingar er brýnt að grípa strax til aðgerða til að láta loka greiðslukortum og breyta aðgangsorðum tengdum heimabanka eftir því sem við á.Á vefnum Taktu tvær má finna frekari upplýsingar hvernig verjast má netsvikum. Á vefnum segir meðal annars:„Helsta vörnin er að treysta ekki í blindni og bregðast ekki strax við fyrirmælum sem við fáum send. Sama hver aðgerðin er þá borgar sig alltaf að staldra við, taka tvær og fara í gegnum nokkur skref áður en ákvarðanir eru teknar varðandi háar fjárhæðir og viðkvæmar upplýsingar:

  • Skoðaðu vefslóðina í hlekk eða þegar á vefsíðuna er komið. Er slóðin traust? Eru nöfn eða fyrirmæli rétt skrifuð?
  • Sannreyndu greiðsluupplýsingar. Er upphæðin rétt? Er hún í réttum gjaldmiðli? Er hún að fara á réttan stað?
  • Hafðu samband við fyrirtæki eða stofnanir ef að vafi kviknar. Eitt símtal getur sparað þér háar fjárhæðir.
  • Er líklegt að einstaklingurinn, fyrirtækið eða stofnunin hafi samband við þig með þeim aðferðum sem um ræðir?
  • Taktu tvær mínútur og veltu fyrir þér: Er tilboðið of gott til að vera satt?“

Kynna má sér varnir gegn netsvikum á vefnum Taktu tvær.