Kostnaður við greiðslumiðlun lækkar

„Með aukinni hagræðingu í rafrænni greiðslumiðlun og auknum fjölda færslna hefur kostnaður við greiðslumiðlun fyrir samfélagið lækkað frá síðustu mælingu árið 2018,“ segir í ritinu Kostnaður við smágreiðslumiðlun sem Seðlabankinn gaf nýlega út. Vísað var til ritsins í framsögu og umræðum á ráðstefnunni Notkun reiðufjár í verslun og þjónustu sem haldin var af Samtökum fjármálafyrirtækja og Samtökum verslunar og þjónustu fyrr í þessum mánuði.

Aukinn greiðsluhraði með aukinni notkun snjalltækja við greiðslumiðlun á þátt í að lækka þennan kostnað samkvæmt riti Seðlabankans. Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika, benti á í framsögu sinni á ráðstefnunni Notkun reiðufjár í verslun og þjónustu að samkvæmt áætlun Seðlabankans hafi hlutfall greiðslna með snjalltækjum í viðskiptum hækkað úr 4,1% árið 2018 í 38,5% árið 2021. Á sama tímabili hefði hlutfall viðskipta þar sem greitt er með reiðufé lækkað úr 6,9% árið 2018 í 1,8% árið 2021.

Áætlaður samfélagskostnaður af greiðslumiðlun hér á landi árið 2021 er samkvæmt Seðlabankanum talinn hafa verið um 1,43% af landsframleiðslu. Það er lægra en í síðustu áætlun Seðlabankans þegar kostnaðurinn var metinn um 1,6% af landsframleiðslu árið 2018. Þó bendir Seðlabankinn á að áætlunin sé háð margvíslegri óvissu svo taka verði samanburði milli landa og tímabila með ákveðnum fyrirvara.

Samfélagslegt tap af reiðufé en kostnaður af greiðslukortafærslum lækkar

Seðlabankinn áætlar að kostnaður af hverri færslu reiðufjár hafi hækkað þannig að samfélagslegt tap sé af notkun reiðufjár. „Það er kostnaðarsamt að reka innviði fyrir reiðufé þegar fáir nota það til greiðslu á vörum og þjónustu,“ segir í ritinu.

Á meðan hefur kostnaður fyrir samfélagið af hverri greiðslukortafærslu lækkað þó nokkuð milli áranna 2018 og 2021. „Með hagræðingu í greiðslumiðlun og fjölgun færslna lækkaði samfélagskostnaður á hverja færslu, óháð tegund greiðslumiðla og greiðsluþjónustu, að meðaltali um 12 kr. frá árinu 2018 eða úr 36 kr. í 25 kr. á árinu 2021,“ segir í riti Seðlabankans.

Þá er áætlað að það dragi úr muninum milli Íslands og Noregs þegar kemur að kostnaði við greiðslumiðlun, en þó bent á að erfitt sé að bera kostnaðinn saman milli landa. Kostnaðurinn af hverri kreditkortafærslu er metin lítillega lægri á Íslandi en í Noregi þó stærðarhagkvæmni í greiðslumiðlun í Noregi sé þónokkuð meiri í ljósi þess að um þrettán sinnum fleiri búa í Noregi en á Íslandi.