Á rauðu ljósi? - Umhverfisdagur atvinnulífsins 29. nóvember
Umhverfisdagur atvinnulífsins 2023 verður haldinn miðvikudaginn 29. nóvember í Hörpu kl. 13:00-15:00 undir yfirskriftinni Á rauðu ljósi?
Dagurinn er haldinn sameiginlega af sameiginlegt verkefni SA, SFF, SFS, SI, SAF, SVÞ og Samorku.
Hægt er að skrá sig á viðburðinn hér.
Dagurinn í ár er tileinkaður Loftslagsvegvísum atvinnulífsins sem afhentir voru Guðlaugi Þór Þórðarsyni umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra á vormánuðum. Þar komu fram 332 tillögur að aðgerðum sem eiga að stuðla að auknum samdrætti í losun atvinnugreinanna. Í vegvísinum er sérstakur kafli um fjármálafyrirtæki sem unnin var af SFF og aðildarfyrirtækjum okkar.
Dagskrá lýkur með hinum árlegu Umhverfisverðlaunum atvinnulífsins sem Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, afhendir. Á síðasta ári fékk Sjóvá verðlaun fyrir umhverfisframtak ársins.
Dagskrá Umhverfsdags atvinnulífsins 29. nóvember 2023
Setning
Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
Orkuframleiðsla og aðgengi að orku
- Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku, stýrir umræðum
- Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
- Auður Daníelsdóttir, forstjóri Orkunnar IS
- Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur
- Auður Nanna Baldvinsdóttir, framkvæmdastjóri Iðunnar H2
Einföldun regluverks
- Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, stýrir umræðum
- Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
- Bogi Nils, forstjóri Icelandair
- Álfheiður Ágústdóttir, forstjóri Elkem Ísland og leiðtogi vegvísis um kísiliðnað
- Aðalheiður Snæbjarnardóttir, forstöðumaður Sjálfbærni hjá Landsbankanum
Fjárhagslegir hvatar til fjárfestinga
- Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF, stýrir umræðum
- Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármálaráðherra
- Björn Ingi Viktorsson, forstjóri Steypustöðvarinnar
- Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka
- Guðmundur Kristjánsson, forstjóri BRIM
Innviðauppbygging
- Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, stýrir umræðum
- Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra
- Agla Huld Þórarinsdóttir, yfirmaður sjálfbærnimála Eimskips
- Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborg og leiðtogi vegvísis um vegasamgöngur
- Svandís Hlín Karlsdóttir, framkvæmdastjóri viðskipta- og kerfisþróunar hjá Landseti
Lokaerindi
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.Umhverfisverðlaun atvinnulífsins 2023Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson afhendir verðlaun fyrir Umhverfisfyrirtæki ársins og Umhverfisframtak ársins 2023.Skráning hér.