Upptaka: SFF dagurinn: Að vaxa með þjóðinni
![](https://cdn.prod.website-files.com/65fc13cc50cee9777b2fd110/660d6711c5daa2857f8a95f1_A%C3%B0%20vaxa%20me%C3%B0%20%C3%BEj%C3%B3%C3%B0inni%20(15).jpg)
SFF dagurinn fór fram 3. apríl undir yfirskriftinni Að vaxa með þjóðinni – fjármálaþjónusta á Íslandi í 150 ár
Tilefnið er að í ár eru 150 ár frá upphafi innlendrar reglusetningar um fjármálafyrirtæki hér á landi. Sú reglusetning hófst með tilskipun Kristjáns IX um hlunnindi fyrir sparisjóði á Íslandi, sem birti var sama dag og Kristján IX staðfesti fyrstu stjórnarskrá Íslands, 5. janúar 1874. Af því tilefni verður horft yfir farinn veg og rýnt í þær áskoranir sem fjármálaþjónusta framtíðarinnar stendur frammi fyrir.
Þá gaf Viðskiptablaðið út veglegt sérblað í tilefni af SFF deginum sem nálgast má hér.
Þátttakendur á SFF deginum voru:
· Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra.
· Björk Sigurgísladóttir, varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands.
· Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka og formaður stjórnar SFF.
· Kari Olrud Moen, framkvæmdastjóri Finans Norge, systursamtaka SFF í Noregi.
· Margrét Einarsdóttir, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík.
· Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku banka.
· Stefán Þór Bjarnason, framkvæmdastjóri Arctica Finance.
· Kjartan Smári Höskuldsson, framkvæmdastjóri Íslandssjóða.
· Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu
Nálgast má upptöku af fundinum hér