Opið fyrir tilnefningar til menntaverðlauna atvinnulífsins fram til 30. janúar

Menntaverðlaun atvinnulífsins verða afhent í Hörpu miðvikudaginn 14. febrúar. Opið er fyrir tilnefningar til verðlaunanna fram til þriðjudagsins 30. janúar. Tilnefningar berist hér í gegnum umsóknarform en einungis er hægt að tilnefna skráð aðildarfélög SA.Óskað er eftir tilnefningum um fyrirtæki sem hafa staðið sig vel á sviði fræðslu- og menntamála. Fyrirtækjum er velkomið að tilnefna sig sjálf.Viðburðurinn er haldinn sameiginlega af Samtökum fjármálafyrirtækja, Samtökum ferðaþjónustunnar, Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtökum iðnaðarins, Samtökum verslunar og þjónustu, Samorku og Samtökum atvinnulífsins.Verðlaun eru sem fyrr veitt í tveimur flokkum. Menntafyrirtæki ársins er valið og menntasproti ársins útnefndur, en fyrirtæki sem tilnefnd eru verða að uppfylla ákveðin viðmið.Helstu viðmið fyrir menntafyrirtæki ársins eru:

  • að skipulögð og markviss fræðsla sé innan fyrirtækisins
  • að sem flest starfsfólk taki virkan þátt
  • að haldið sé utan um mælikvarða í fræðslumálum
  • að hvatning sé til staðar til frekari þekkingaröflunar

Helstu viðmið vegna menntasprota ársins eru:

  • að lögð sé stund á nýsköpun í menntun og fræðslu, innan fyrirtækis og/eða í samstarfi fyrirtækja
  • samstarf fyrirtækja og samfélags um eflingu fræðslu, innan sem utan fyrirtækja.

Skýr og skipulögð gögn hjálpa dómnefnd að meta tilnefningar.Hægt er að tilnefna fyrirtæki hér til menntaverðlauna atvinnulífsins.