Óskað eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins

Samtök atvinnulífsins og aðildarsamtök, þar með talið Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu, óska eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins, fyrir 6. september 2024. Verðlaunin verða veitt á Umhverfisdegi atvinnulífsins sem fer fram 22. október.

Veitt verða tvenn verðlaun, fyrir bæði umhverfisfyrirtæki ársins og framtak ársins.

Dómnefnd velur úr tilnefningum en til að tilnefning teljist gild þurfa fyrirtæki að uppfylla sett viðmið og rökstuðningur þarf að fylgja.

Tilnefna þarf fyrirtæki sérstaklega undir hverjum flokki en einnig er hægt að tilnefna fyrirtæki fyrir báða flokka.

Athugið að einungis er hægt að tilnefna skráð aðildarfyrirtæki Samtaka atvinnulífsins og aðildarfélaga til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins.

Að Umhverfisdegi atvinnulífsins standa Samtök atvinnulífsins, Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu, Samtök iðnaðarins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Samtök verslunar og þjónustu.

Tilnefna má fyrirtæki hér.