Ráðstefna um fjármálavit ungs fólks 18. janúar

Samtök fjármálafyrirtækja standa að ráðstefnu undir yfirskriftinni Fjármálvit ungs fólks fimmtudaginn 18. janúar frá 15-16:30 í Veröld, húsi Vigdísar við Brynjólfsgötu í Reykjavík. Boðið verður upp á léttar veitingar.

Á ráðstefnunni verða meðal annars kynntar niðurstöður könnunar Gallup á fjármálaviti Íslendinga samanborið við önnur Evrópuríki og farið yfir stöðu fjármálalæsiskennslu ungmenna hér á landi.

Endanleg dagskrá verður kynnt á næstu dögum.

Hægt er að skrá sig á ráðstefnuna hér.