ÞINGI FRESTAÐ

Alþingi var frestað fyrr í dag en boðað hefur verið til kosninga 29. október. Á endaspretti þingsins voru nokkur mál er varða hagsmuni aðildarfélaga SFF samþykkt.Í dag, fimmtudag, var frumvarp um aðgerðir stjórnvalda gegn skattsvikum samþykkt. SFF sendu tvær umsagnir um málið. Þær má nálgast hér og hér. Í þeim kom meðal annars fram röksemdafærsla fyrir því að fella ætti niður 7. grein frumvarpsins en hún hefði haft í för með sér mikla aukningu á upplýsingaskyldu fjármálafyrirtækja. Fallist var á þau rök í meðförum þingsins. Þann dag varð frumvarp um fasteignalán til neytenda einnig að lögum. Umsögn SFF má nálgast hér.Á miðvikudag varð frumvarp um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð að lögum. SFF studdu markmið frumvarpsins en bentu á í umsögn sinni að sumar greinar þess þörfnuðust nánari skýringar og vandaðri útfærslu. Meðal þess bent var á að taka þyrfti af allan vafa að með afborgun væri átt við bæði niðurgreiðslu höfuðstóls og vaxta og fallist var á það í meðförum þingsins. Frumvarpið var lagt fram ásamt frumvarpi um vexti og verðtryggingu í tengslum við markmið ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum. Það frumvarp, sem hefði sett takmarkanir á veitingu verðtryggðra lána til 40 ára, var ekki samþykkt.Á þriðjudaginn varð frumvarp um skyldutryggingu lífeyrisréttinda að lögum. Lögin fela í sér rýmkun á fjárfestingaheimildum lífeyrissjóða. Í meðferð þingsins var meðal annars komið móts við tillögur SFF um rýmka þyrfti heimildir lífeyrissjóða til fjárfestinga í sértryggðum skuldabréfum að einhverju leyti. SFF sendu tvær umsagnir um málið og þær má nálgast hér og hér. Þá sendu samtökin eina athugasemd til efnahags- og viðskiptanefndar og eitt minnisblað til sömu nefndar vegna málsins.Sama dag samþykkti Alþingi frumvarp um losun fjármagnshafta. Meðal þess sem SFF náðu fram í meðferð þingsins var að fá inn sérstaka heimild fyrir einstaklinga og lögaðila vegna kaupa á lífeyrissparnaði og lífeyristryggingum í erlendum gjaldeyri og vegna fjárfestinga í verðbréfa- og fjárfestingarsjóðum í erlendum gjaldeyri. Umsögn SFF má nálgast hér.