UPPLÝSINGASKIPTI Á FJÁRHAGSUPPLÝSINGUM
![](https://cdn.prod.website-files.com/65fc13cc50cee9777b2fd110/65fc13cc50cee9777b2fd391_6a0153926bd93f970b0240a4ac300f200d-800wi.jpeg)
Samtök fjármálafyrirtækja vekja athygli á nýjum reglum um samræmdan og alþjóðlegan staðal Efnahags- og framfarastofnunarinnar um sjálfvirk upplýsingaskipti á fjárhagsupplýsingum. Fjármálafyrirtækjum er nú gert skylt að safna tilteknum upplýsingum um viðskiptavini sína með skattalega heimilisfesti í öðru ríki eða annarra lögsögu en fjármálafyrirtækið og koma þeim upplýsingum til lögbærs yfirvalds. Nánar má lesa um málið hér en enska útgáfu af upplýsingunum má finna hér.