ÚTSKRIFT ÚR VOTTUNARNÁMI

Á fimmtudag útskrifuðust 39 starfsmenn aðildarfélaga SFF úr vottunarnámi fjármálaráðgjafa og vátryggingaráðgjafa. Þetta er í sjöunda sinn sem fjármálaráðgjafar hljóta vottun og í fjórða sinn sem vátryggingaráðgjafar eru vottaðir.Kristín Lúðvíksdóttir, verkefnastjóri fjármálafræðslu hjá SFF, ávarpaði útskriftarnemana. Í ræðu sinni sagði hún meðal annars. að vönduð og upplýst ráðgjöf til einstaklinga sé mikilvægur þáttur í rekstri fjármála- og vátryggingafélaga, og að vottunarnámið hafi hingað til skilað veigamiklum árangri í að tryggja gæði slíkrar ráðgjafar. Með fleiri vottuðum ráðgjöfum í fjármála- og tryggingageiranum eru fyrirtækin að stuðla að auknum árangri neytenda, fyrirtækja og samfélags.Markmið vottunarinnar er að samræma þær kröfur sem eru gerðar til fjármálaráðgjafa og tryggja að þeir búi yfir nauðsynlegri þekkingu og færni í starfi. Verkefnið á sér norska fyrirmynd en slíkt vottunarferli hefur verið að ryðja sér til rúms í nágrannalöndunum á undanförnum árum. Að vottunarnáminu standa Samtök fjármálafyrirtækja, fjármála- og efnahagsráðuneytið, Háskólinn á Bifröst, viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík og Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja.Myndirnar frá útskriftarathöfninni eru aðgengilegar hér á Facebook-síðu SFF.