VÁTRYGGINGAFÉLÖGIN STYRKJA LANDSPÍTALA UM 18 MILLJÓNIR

Þann 16. október var undirritaður samningur á milli Samtaka fjármálafyrirtækja og hjartadeildar Landspítala um að vátryggingafélögin Sjóvá, TM, VÍS og Vörður styrki deildina um 18 milljónir króna á næstu þremur árum. Styrknum verður varið til að stórefla fræðslu og forvarnarstarf á vegum hjartadeildar. Hjarta og æðasjúkdómar eru helsta dánarorsök Íslendinga og því vel við hæfi að vátryggingafélögin styðji við hjartadeild Landspítala með þessum hætti.Í fyrstu verður megináherslan á að styrkja svokallaðar annars stigs forvarnir, þ.e. forvarnir hjá þeim sem hafa þegar greinst með kransæðasjúkdóm. Það felur meðal annars í sér reykleysismeðferð, meðferð við háþrýstingi, sykursýki og hækkuðu kólesteróli. Einnig verður skoðað hvernig best er að efla forvarnir hjá þeim sem enn hafa ekki greinst með hjartasjúkdóm. Í því tilliti kynni að vera áhugavert að beina sjónum fyrst og fremst að yngri kynslóðum.Samningurinn felur meðal annars í sér þróun vefsíðu með gagnvirku fræðsluefni um kransæðasjúkdóma. Styrkurinn verður einnig nýttur til umbóta á aðstöðu sjúklinga og aðstandenda þeirra sem liggja á hjartadeild. Þá verður enn fremur lagt fé til eflingar starfsþróunar starfsfólks deildarinnar. Að sögn Katrínar Jakobsdóttir, framkvæmdastjóra SFF, þá gegna vátryggingafélögin mikilvægu hlutverki í samfélaginu þegar kemur að fræðslu og forvörnum: "Forvarnir eru ákaflega mikilvægar þegar kemur að vörnum gegn sjúkdómum á borð við hjarta- og æðasjúkdóma. Þar getur lífsstíll og mataræði til að mynda skipt miklu máli til þess að koma í veg fyrir slíka sjúkdóma. Samkomulag vátryggingafélaganna og hjartadeildar er því mikið fagnaðarefni og mun án efa skila miklum árangri þegar fram í sækir“ segir Katrín