VEGNA UMRÆÐU UNDANFARINNA DAGA

Á undanförnum dögum hefur töluverð umræða skapast um umsögn SFF um frumvarp til breytinga á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda sem send var Alþingi í maí síðastliðnum. Umsögnin hefur verið skilin svo að SFF leggi ríka áherslu á að bann verði lagt við beinum lánveitingum lífeyrissjóða. Það var ekki ætlunin með umsögninni.Aðaláhersla SFF er sú að allir þeir sem starfa á fjármálamarkaði búi við samræmt regluverk og sömu kvaðir og skyldur. Frumvarpið felur í sér rýmkun á fjárfestingaheimildum lífeyrissjóða og styðja SFF markmið þess.Eitt af meginhlutverkum SFF er að stuðla að upplýstri umræðu um fjármálakerfið og mikilvægi þess fyrir framgang efnahagslífsins. Sá hluti umsagnarinnar sem hefur verið til umræðu, á undanförnum dögum, fjallar um hætturnar sem geta falist í lánveitingum aðila á fjármálamarkaði og nauðsyn þess að tryggja að regluverk sé samræmt og tryggt.SFF fagna allri samkeppni á fjármálamarkaði en leggja áherslu á að hún fari fram á jafnréttisgrundvelli. En eins og bent er á í umsögninni þá er samkeppnisstaða lánafyrirtækja og lífeyrissjóða ójöfn. Þannig greiða lífeyrissjóðir ekki sérstaka skatta á borð við banka- og fjársýsluskatt sem einungis eru lagðir á aðildarfélög SFF auk þess sem þau búa við mun strangara eftirlit og regluverk þegar kemur að lánveitingum til þess að koma í veg fyrir kerfislega áhættu.