Íslenskir dómstólar munu dæma um skilmála lánastofnana

- Í áliti EFTA dómstólsins felst ekki efnisleg niðurstaða heldur gefur dómstóllinn ráðgefandi álit

EFTA-dómstóllinn birti í gær ráðgefandi álit á túlkun á tilteknum ákvæðum tilskipana Evrópusambandsins sem varða fasteignalán til neytenda. Tilskipanirnar hafa verið innleiddar með lögum í íslenskan rétt. Álitið er áfangi í rekstri tiltekinna dómsmála hér á landi en samtökin árétta að það er hlutverk íslenskra dómstóla að dæma um gildi ákvæða í skilmálum fasteignalána um vaxtabreytingar hér á landi.

Álits EFTA-dómstólsins var leitað að beiðni Héraðsdóms Reykjavíkur og Héraðsdóms Reykjaness, í dómsmálum sem rekin eru gegn tveimur bönkum, Landsbankanum og Íslandsbanka. Málin varða samningsákvæði í lánssamningum bankanna um forsendur fyrir breytingum á vöxtum fasteignalána.

Í álitinu er tekið fram að það eru íslenskir dómstólar sem munu skera úr um hvort fjármálastofnun hafi veitt neytanda nægar upplýsingar til að neytandi geti kynnt sér tiltekna virkni þeirrar aðferðar sem notuð eru við útreikning vaxtanna. Þá eru það einnig íslenskir dómstólar að skera úr um hvort umdeildir skilmálar uppfylli kröfur um góða trú, jafnvægi og gegnsæi. Það sama gildir um mat á því hvort skilmálarnir valdi umtalsverðu ójafnvægi réttindi og skyldna milli samningsaðila samkvæmt samningum neytanda til tjóns og þá hvort og hvaða afleiðingar slíkt hafi á skilmála samninganna. Það gildir einnig um mat á því hvort ógilding óréttmætra skilmála sé líkleg til að koma í veg fyrir að samningar haldi gildi sínu.

Hlutverk EFTA-dómstólsins er að gefa ráðgefandi álit um túlkun tilskipana og reglugerða Evrópusambandsins. Íslensku lögin hafa að geyma sérreglu um skilyrði fyrir vaxtabreytingum lána sem ekki er að finna í fasteignalánatilskipuninni og mun það lagaákvæði ásamt áliti EFTA-dómstólsins koma til skoðunar hjá héraðsdómi eftir því sem málunum vindur fram.

Umrædd dómsmál munu nú verða tekin til áframhaldandi meðferðar hjá íslenskum dómstólum.

Hér má nálgast álitið sjálft.