Umsögn SFF til Alþingis um frumvarp um breytingar á lögum um greiðsluaðlögun einstaklinga
Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) hafa sent Alþingi umsögn um frumvarp um breytingar á lögum um greiðsluaðlögun einstaklinga. SFF fagna endurskoðun laganna á grundvelli fenginnar reynslu embættis umboðsmanns skuldara og reynslu fjármálafyrirtækja sem kröfuhafa, frá árinu 2010 þegar lögin voru upphaflega sett. Mikil reynsla er komin á framkvæmd laganna hjá þessum aðilum. Gerðar eru ýmsar athugasemdir við frumvarpið m.a. að í frumvarpinu er lagt til að ákvörðun um afmáningu veðskulda skuli tekin við upphaf greiðsluaðlögunarsamnings og hún framkvæmd við samþykki samnings. Að mati SFF ætti skilyrði slíkrar afmáningar alltaf að vera að skuldari hafi staðið í skilum með greiðsluaðlögunarsamning sinn, en ekki að afmáning fari fram strax í upphafi. Ef skuldari stendur svo ekki við samning sinn og samningurinn er felldur niður hefur kröfuhafi tapað mikilvægum tryggingarréttindum sínum. Þá er eðlilegt að miða við markaðsvirði íbúðarhúsnæðis við lok greiðsluaðlögunartímabils, eins og lög nr. 50/2009 gera nú ráð fyrir, þar sem markaðsvirði getur tekið miklum breytingum á greiðsluaðlögunartímabili.
Umsögnina í heild má finna hér til hliðar